11. júní 2015 |
Aðalsafnaðarfundur Reykhólasóknar
Aðalsafnaðarfundur Reykhólasóknar verður haldinn í Reykhólakirkju kl. 20 í kvöld, fimmtudaginn 11. júní.
- Gerð grein fyrir starfsemi og rekstri sóknarinnar á liðnu starfsári.
- Afgreiðsla endurskoðaðra reikninga sóknar og kirkjugarðs fyrir síðasta ár.
- Önnur mál.
Kaffisopi og kökubiti. Allir sóknarmeðlimir, 16 ára og eldri, hafa tillögu- og atkvæðisrétt á aðalsafnaðarfundi. Mætum öll og tökum þátt í uppbyggingu kirkjunnar okkar.