Aðalskipulag Reykhólahrepps 2021-2033
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum þann 16. júní 2022 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2021-2033, skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 15. gr. laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Tillagan samanstendur af greinargerð, uppdráttum og umhverfismatskýrslu.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, Reykhólum og hjá Skipulagsstofnun frá og með 8. júlí 2022 til 26. ágúst 2022.
Tillagan er aðgengileg hér á heimasíðu Reykhólahrepps.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 26. ágúst 2022.
Athugasemdum skal vinsamlegast skila til skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a, Reykhólum eða á netfang embættis skipulagsfulltrúa sveitarfélagsins: skipulag@dalir.is fyrir 27. ágúst 2022.
Arwa Alfadhli, skipulagsfulltrúi Reykhólahrepps.