16. janúar 2019 | Sveinn Ragnarsson
Aðalskipulagstillögu frestað til 22. jan.
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum í dag að fresta ákvörðun um leið Vestfjarðavegar um Gufudalssveit í aðalskipulagi sveitarfélagsins til þriðjudagsins 22. janúar.
Ingimar Ingimarsson, oddviti, lagði fram tillögu á fundinum um að ákvörðuninni yrði frestað þar sem sveitarstjórn á bókaðan fund með samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra á mánudaginn, rétt væri að bíða með endanlega ákvörðun uns sá fundur væri yfirstaðinn.
Tillagan var samþykkt samhljóða.
Ingimar segir ákvörðun um legu Vestfjarðavegar vera eina mál aukafundarins í næstu viku og að allar líkur séu á því að málið verði afgreitt.