Tenglar

29. október 2010 |

Aðalsteinn Óskarsson tekur tímabundið við Atvest

Framkvæmdastjóri Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, Þorgeir Pálsson, hefur sagt upp störfum hjá félaginu og hefur náðst samkomulag milli hans og stjórnar um starfslok. Hann lætur af störfum í dag. Stjórn Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða hefur af þessum sökum leitað til stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga um tímabundna aðkomu að framkvæmdastjórn félagsins.

 

Á fundi stjórnar Fjórðungssambands Vestfirðinga í dag var beiðni stjórnar Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða samþykkt. Hefur stjórn sambandsins falið framkvæmdastjóra Fjórðungssambands Vestfirðinga, Aðalsteini Óskarssyni, að taka tímabundið við framkvæmdastjórn Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða, samhliða núverandi störfum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31