Tenglar

13. maí 2011 |

Aðgengi fyrir fatlaða - hvatning frá félagsmálastjóra

Með hækkandi sól á himni og batnandi veðri mun margt fólk vilja njóta útiveru og ganga eða hjóla. Það á ekkert síður við um fatlaða og þá sem eiga óhægt um vik vegna sjúkdóma en aðra. Ferðamönnum fjölgar sömuleiðis hér á svæðinu í sumar. Víða skortir á að bílastæði fyrir hreyfihamlaða séu merkt sérstaklega með skilti eða vegmerkingu. Enn fremur þarf að huga betur að aðgengismálum vegna fatlaðra. Félagsmálastjóri hvetur sveitarstjórnir og stjórnendur fyrirtækja og stofnana á svæðinu til að ráðast í úrbætur að þessu leyti og láta það verða hluta af vorverkunum að merkja bílastæði fyrir hreyfihamlaða þar sem það á við.

 

Fatlaðir eiga að geta sótt þjónustu sem í boði er eins og aðrir. Það er þeirra réttur.

 

- Hildur Jakobína Gísladóttir,

félagsmálastjóri Stranda og Reykhólahrepps.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31