11. júlí 2017 | Sveinn Ragnarsson
Aðgerðaáætlun í loftslagsmálum
Vinna við aðgerðaáætlun í loftslagsmálum er hafin og hefur verið opnað sérstakt vefsvæði tileinkað vinnunni á slóðinni www.co2.is.
Almenningur er hvattur til að senda hugmyndir og tillögur að aðgerðum til verkefnisstjórnar á netfangið loftslag@uar.is
Ætlunin er að birta jafnóðum á vefsvæðinu þær tillögur sem berast en þar er einnig að finna ýmsar upplýsingar er tengjast vinnunni við aðgerðaáætlun.
Allar nánari upplýsingar er að finna á www.co2.is