28. apríl 2011 |
Aðstæður og samkeppnisskilyrði á Vestfjörðum
Afl í auðlindum Vestfjarða er yfirskrift ráðstefnu sem haldin verður á Ísafirði kl. 10-16 á laugardaginn. Þar verður fjallað um tækifæri, aðstæður og samkeppnisskilyrði fyrirtækja á Vestfjörðum. Til svara verða Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra, Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra, Árni Páll Árnason efnahags- og viðskiptaráðherra, Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Guðni Jóhannesson orkumálastjóri, Kristján Haraldsson orkubússtjóri og Finnbogi Jónsson hjá Framtakssjóði Íslands.
Allar nánari upplýsingar er að finna hér (pdf).