Tenglar

22. júlí 2015 | Ingibjörg Birna Erlingsdóttir

Aðstoð við matseld og umsjónarmaður Grettislaugar óskast.

Aðstoðarmatráð vantar í mötuneyti Reykhólahrepps nú þegar eða sem allra fyrst. Starfshlutfall allt að 100%. Hæfnisskilyrði: Góð þjónustulund, lipurð í samskiptum. Reynsla af matseld æskileg.

 

Nánari upplýsingar um starfið og allt sem því viðkemur gefur Ingvar Samúelsson matráður í síma 898 7783 eða sveitarstjóri í síma 430 3200.

 

Laun fara eftir kjarasamningum sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

 

Reykhólahreppur auglýsir laust starf umsjónarmanns Grettislaugar á Reykhólum frá 1. september 2015, jafnvel fyrr. Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera samviskusamur og traustur og góður í mannlegum samskiptum. Starfið felst í umsjón með sundlauginni, rekstri hennar og öryggi laugargesta.

 

Viðkomandi hefur mannaforráð og sér um skipulag vakta og ráðningu starfsfólks í sumarafleysingar. Um er að ræða ca. 50% starfshlutfall að jafnaði. Starfi þessu fylgir mikil ábyrgð. Umsækjandi þarf að kunna hjálp í viðlögum og hafa gilt skírteini frá RKÍ.

 

Upplýsingar um starfið gefur sveitarstjóri í síma 430 3200. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Reykhólahrepps eða í netfangið sveitarstjori@reykholar.is sem allra fyrst.

       

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31