6. desember 2014 |
Aðventuhátíðir í Reykhólaprestakalli
Sr. Elína Hrund efnir til aðventuhátíða á þremur stöðum í prestakalli sínu á morgun, 7. desember, annan sunnudag í aðventu. Viðar Guðmundsson leikur á hljóðfærið og kór Reykhólaprestakalls leiðir sönginn. „Komum öll með veitingar og bjóðum hvert öðru,“ segir sr. Elína.
Hátíðirnar á morgun eru þessar:
Aðventuhátíð í Reykhólakirkju kl. 13.
Piparkökur og djús á eftir.
Aðventuhátíð í Barmahlíð kl. 14.30.
Aðventuhátíð í Staðarhólskirkju kl. 17.
Kaffi í Tjarnarlundi á eftir.