Aðventukvöld og helgihald um jólin
Aðventukvöld verður í Reykhólakirkju kl. 21 í kvöld, þriðjudag, eins og fram kemur í atburðadagatalinu efst í hægri dálki hér á vefnum. Þar hafa jafnframt verið settar inn upplýsingar um helgihald í Reykhólaprestakalli um jólin. Guðsþjónusta verður á dvalarheimilinu Barmahlíð síðdegis á aðfangadag og í Reykhólakirkju seint á aðfangadagskvöld. Á jóladag verða guðsþjónustur í Gufudal og Garpsdal og á annan í jólum að Staðarhóli í Saurbæ og á Skarði á Skarðsströnd. Nánari upplýsingar birtast með því að smella á dagsetningarnar á dagatalinu.
Eftir stækkun Reykhólaprestakalls ekki alls fyrir löngu tekur það einnig til Staðarhólssóknar í Dalasýslu. Sóknirnar sem fyrir voru í prestakallinu eru Reykhólasókn, Garpsdalssókn, Gufudalssókn og Flateyjarsókn. Kirkjur í prestakallinu eru Flateyjarkirkja, Múlaneskirkja, Gufudalskirkja, Staðarkirkja á Reykjanesi, Reykhólakirkja, Garpsdalskirkja, Staðarhólskirkja og Skarðskirkja.
Prestur í Reykhólaprestakalli þessi misserin er sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir.