11. desember 2015 |
Aðventukvöldið á Reykhólum á sunnudag
Sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir sóknarprestur stefnir að því að halda aðventukvöld í Reykhólakirkju núna á sunnudaginn kl. 20, þriðja sunnudag í aðventu. Samveran átti að vera síðasta mánudagskvöld en var frestað af skiljanlegum ástæðum. Eins og nú horfir eru aftur á móti líkur á þokkalegasta veðri miðað við árstíma.
Dagskráin er fjölbreytt:
- Fermingarbörnin lesa og aðstoða.
- Kveikt á aðventukertunum.
- Frásögn frá bernskujólum um miðja 20. öld.
- Jólasaga - Jólaboðorðin tíu - Hugleiðing.
- Kór Reykhólaprestakalls leiðir almennan söng, organisti og söngstjóri Viðar Guðmundsson.
Kaffi, djús, piparkökur og spjall á eftir. Allir velkomnir.