6. desember 2009 |
Aðventustund í Reykhólakirkju
Aðventustund verður í Reykhólakirkju kl. 13.30 í dag, annan sunnudag í aðventu. Tómas Martin Bjargarson spilar á trompet. Svavar Sigurðsson stjórnar kór og almennum safnaðarsöng. Hugleikur (hugvekja + helgileikur) verður fluttur með aðstoð barna og unglinga. Fermingarbörn upplýsa leyndardóminn á bak við þekktan jóladægurlagatexta sem margir syngja hástöfum um hver jól.
Prestur er sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir.