3. febrúar 2017 | Umsjón
Aðvörun - sjóðandi vatn í kerfinu!
Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR) eru að undirbúa mælingar á jarðvarmageyminum á Reykhólum í komandi viku (6.-10. febrúar). Heitasta vatnið streymir þannig ekki niður í Þörungaverksmiðju og þar með myndast þrýstingur á kerfinu nálægt holum.
Þess vegna er hætta á að pípur, kranar og hús geti verið heitari en vant er. Hitinn á Reykhólum er hærri en 100°C. Ef örlítið gat kemur á rör, þá er hætta á að út spýtist sjóðandi heitt vatn. Íbúar eru því beðnir um að hafa varann á og fylgjast með börnum og gestum.