10. febrúar 2016 |
Aðvörun frá OV: Lágt undir háspennulínur
Orkubú Vestfjarða minnir ferðalanga á, að núna er lágt undir háspennulínur víða til fjalla. Teitur Magnússon, starfsmaður Orkubúsins, tók í dag myndirnar sem hér fylgja á Rauðkolli upp af Engidal við Skutulsfjörð. Þær eru birtar á Facebooksíðu OV.