Tenglar

22. desember 2008 |

Aðvörun frá Veðurstofu og Almannavörnum

Merki Almannavarna.
Merki Almannavarna.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vekur athygli á viðvörun frá Veðurstofunni, en gert er ráð fyrir stormi víða um land en þó verður hvassast vestanlands. Einnig mun hlýna nokkuð um allt land ásamt því að gert er ráð fyrir rigningu um mest allt land seinnipartinn í dag og í kvöld. Mikilvægt er að fólk hreinsi vel frá niðurföllum og tryggi að úrkoma og leysingavatn eigi greiða leið í þau. Búast má við að mikið hækki í ám og að einhverjar ár flæði yfir bakka. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru í viðbragðsstöðu ef þörf krefur. Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hvetur fólk auk þess til að huga vel að lausum munum, fara varlega og fylgjast vel með fréttum af veðri og færð.


Sjá tengilinn Veðrið á svæðinu í valmyndinni til vinstri á síðunni.

Upplýsingar um færð á vegum má finna hér (smellið á kortið sem þar birtist eða landshlutanöfnin þar fyrir neðan).
 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31