Tenglar

20. mars 2015 |

Aðvörun varðandi háspennulínur á hálendinu

Sýnum aðgæslu. Ljósm. ov.is.
Sýnum aðgæslu. Ljósm. ov.is.

Vegna mikilla snjóalaga víða á hálendi Vestfjarða vilja Orkubú Vestfjarða og Landsnet benda á eftirfarandi: Mikill snjór er víða til fjalla og því ættu allir þeir sem ferðast utan alfaraleiða að sýna sérstaka aðgát. Háspennulínur eru ekki alltaf sýnilegar vegna snjóa og slæms skyggnis. Í miklu fannfergi minnkar bilið frá jörðu að línu og einnig er hætta á að ísing á línum leiði til þess að línurnar sígi mikið. Við allra verstu aðstæður liggja leiðarar alveg niður í snjó.

 

Við þessar aðstæður, þegar bilið milli yfirborðs og línu er orðið þetta lítið, skapast hættuástand og lífsnauðsynlegt að gæta ýtrustu varúðar. Því er skíðafólk, vélsleðafólk, jeppafólk og aðrir sem eru á ferð um fjalllendi beðið um að gæta sérstakrar varúðar. Góð regla er að athuga áður en lagt er af stað hvort og þá hvar háspennulínur liggja um það svæði sem ferðast skal um.

 

Ef einhver verður var við að háspennulína sé of nálægt yfirborði eða eitthvað annað sé athugavert við línuna, þá verður að tilkynna það strax til Orkubús Vestfjarða eða Landsnets.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31