Tenglar

24. ágúst 2011 |

Æðarræktarfélag Íslands heldur aðalfund á Reykhólum

Aðalfundur Æðarræktarfélags Íslands verður að þessu sinni haldinn í íþróttahúsinu á Reykhólum á laugardag. Eftir fundinn efna Æðarvé, félag æðarbænda í Austur-Barðastrandarsýslu og Dalasýslu, sem er deild innan Æðarræktarfélags Íslands, til vettvangsferðar fyrir fundarmenn. Heimsótt verður Báta- og hlunnindasýningin þar sem skemmtilegar uppákomur verða, farið verður í skoðunarferð um Þörungaverksmiðjuna og síðan farið í heimsókn á sveitabæ úti á Reykjanesi.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31