31. október 2013 | vefstjori@reykholar.is
Æðarvé boða til aðalfundar á Reykhólum
Stjórn Æðarvéa boðar til aðalfundar í Reykhólaskóla núna á þriðjudag 5. nóv. og hefst hann kl. 13.30. Auk venjulegra aðalfundarstarfa situr fundinn Sigríður Ólafsdóttir, hlunnindaráðgjafi hjá Ráðgjafamiðstöð landbúnaðarins (RML). Æðarræktarfélagið Æðarvé er ein af deildum Æðarræktarfélags Íslands og spannar bæði Austur-Barðastrandarsýslu (Reykhólahrepp) og Dalasýslu (Dalabyggð).
Sjá einnig:
► Æðarræktarfélag Íslands á Reykhólum - myndasyrpa