29. mars 2013 | vefstjori@reykholar.is
Æfingaferð frjálsíþróttafólks til Reykjavíkur
Héraðssamböndin UDN, USK, HSH, UMSB, UMFK, HSS og HHF boða til annarrar samæfingar í Laugardalshöll fyrir iðkendur sína. „Við höfum fengið tíma í frjálsíþróttaaðstöðunni í Laugardalshöll laugardaginn 6. apríl og stefnum að sameiginlegri æfingaferð með frjálsíþróttafólkið okkar“, segir í kynningarorðum SAMVEST-samstarfsins til iðkenda og foreldra. Eftirfarandi er ákveðið:
- Ferðin er hugsuð fyrir þátttakendur 10 ára (árgangur 2003) og eldri.
- Þjálfarar á starfssvæðinu munu sjá um þjálfun en til aðstoðar verða gestaþjálfarar frá stærri félögum á höfuðborgarsvæðinu.
- Æfðar verða flestar greinar, svo sem spretthlaup, langstökk, hástökk og kastgreinar.
Dagskrá: Æfing kl. 13-16, sameiginleg máltíð, og svo sundferð eftir því sem áhugi er fyrir.
Í kynningunni segir einnig:
- Kæru iðkendur og foreldrar!
- Þessi æfingaferð er mikilvægt skref í samstarfi sem getur skilað okkur umtalsverðum ávinningi og skemmtilegri reynslu.
- Mikilvægt er að vita sem allra fyrst hverjir hafa áhuga og sjá sér fært að komast.
Skráningar þurfa að berast til Hönnu Siggu í síma 847 9598 eða í netfangið hannasigga@audarskoli.is í síðasta lagi miðvikudaginn 3. apríl.
Myndir nr. 2-6 eru frá sameiginlegri æfingu SAMVEST í Laugardalshöll í nóvember.