3. febrúar 2013 | vefstjori@reykholar.is
Æfingar barnakórsins að byrja á ný
Hrefna Jónsdóttir á Reykhólum er að fara af stað með barnakórinn á nýjan leik. Fyrstu æfingarnar verða núna í vikunni og að þessu sinni verður kórinn aldursskiptur. Börn á aldrinum 4-7 ára (á árinu) æfa á fimmtudögum kl. 17-18 en á aldrinum 8-12 ára á þriðjudögum kl. 17-18. Nú munum við einnig læra á bjöllur! segir Hrefna.
Gjaldið er það sama og fyrir áramót, 3.000 krónur önnin. Allir eru velkomnir, hvort sem þeir voru fyrir áramót eða ekki.