18. ágúst 2014 | vefstjori@reykholar.is
Afgreiðslutíminn styttist og lokað á sunnudögum
Minnt skal á, að frá og með deginum í dag styttist afgreiðslutíminn í versluninni Hólakaupum á Reykhólum eins og venjulega á haustin. Að þessu sinni styttist hann þó meira en verið hefur síðustu ár, auk þess sem lokað verður á sunnudögum. Opið verður frá mánudegi til föstudags kl. 10-17 (athugið, til kl. 17 en ekki kl. 18 eins og tíðkast hefur) og á laugardögum kl. 12-17.
Ekki verður hægt að reikna með því að Eyvindur kaupmaður verði búinn að opna klukkan 7 á morgnana eins og langflesta daga síðustu árin þar sem hann mun hafa öðrum hnöppum að hneppa.