8. júlí 2012 |
Aflið ykkur miða á kvöldskemmtunina í tíma
Dagskrá Reykhóladaganna 2012 er nánast frágengin, fjölbreyttari en nokkru sinni fyrr. Frá því að hún var sett hér á vefinn í stórum dráttum um síðustu mánaðamót hefur upplýsingum verið bætt við varðandi ýmis atriði. Rétt er að taka fram, að sætafjöldi á kvöldskemmtuninni er takmarkaður. Pantanir streyma inn og samkvæmt reynslunni er betra að vera þar með fyrra fallinu.
Dagskráin og allar helstu upplýsingar (pdf-skjal, þrjár síður, uppfært jafnóðum og eitthvað bætist við). Líka má finna dagskrárskjalið ef farið er í atburðadagatalið efst til hægri (26.-29. júlí).
Látið berast sem víðast!