Tenglar

16. febrúar 2011 |

Afmælisfagnaður á Reykhólum á laugardag

Amma með Þórgunni Rítu.
Amma með Þórgunni Rítu.
1 af 2
Olga Sigvaldadóttir á Hamarlandi í Reykhólasveit verður með opið hús í Reykhólaskóla á laugardaginn í tilefni af sextugsafmæli sínu. Samsætið hefst kl. 20 og í boði verða pottréttur, kaffi og kökur. Sjálfur afmælisdagurinn er reyndar á morgun, 17. febrúar. Hins vegar á Matthías Ólason á Hamarlandi, eiginmaður Olgu, afmæli í dag, 16. febrúar, þótt ekki sé það stórafmæli.

 

Olga er frá Hafrafelli í Reykhólasveit en Matthías er upprunninn á Hamarlandi. Á myndunum tveimur sem hér fylgja eru þau með dótturdóttur sína, Þórgunni Rítu, dóttur Herdísar Ernu Matthíasdóttur og Gústafs Jökuls Ólafssonar á Reykhólum. Litla stúlkan fæddist á þrettándanum fyrir rúmu ári.

 

Sjá einnig:

06.01.2010  Fyrsta barnið í Reykhólahreppi á nýja árinu

 

Athugasemdir

Þorgeir Samúelsson, laugardagur 19 febrar kl: 14:12

Heil og sæl fermingasystir...það eru komin heil 46 ár frá því að við gengum upp að altarinu:) ekki til að giftast....heldur til að fermast og meðtaka skýrnina.. ekki komum við samt frá ættaróðölum eða landnáms-jörðum...heldur frá óbreyttu bændasamfélagi sem kanski er besti skólin...þess vegna erum við kanski með aðra sýn á lífið en okkur yngra fólk....Óska þér ynnilega til hamingju með þennan áfanga...vona að þú eigir góðan og fallegan afmælisdag

kv.
Þorgeir

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31