Tenglar

25. september 2015 |

Afmælisfagnaður hjá Jónu Valgerði áttræðri

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir.

Jóna Valgerður Kristjánsdóttir í Mýrartungu II í Reykhólasveit, fyrrum alþingismaður og fyrrv. sveitarstjóri Reykhólahrepps, er áttræð á morgun, laugardaginn 26. september. Hún verður syðra á afmælinu og ætlar að fagna tímamótunum með fjölskyldu og vinum í safnaðarheimili Bústaðakirkju milli kl. 15 og 18 á afmælisdaginn. Sveitungar Jónu Valgerðar fyrr og síðar sem staddir verða syðra eru vel þegnir í fagnaðinn til að njóta dagsins með henni.

 

► Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, helstu æviatriði á vef Alþingis

 

► Sjá einnig hér

 

Athugasemdir

Margrét Guðlaugsdóttir, laugardagur 26 september kl: 10:50

Hamingjuóskir í tilefni dagsins
lifðu heil

kveðja Margrét og Örn

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31