Afmælismessa í Staðarkirkju á Reykjanesi
Kirkjan á Stað á Reykjanesi í Reykhólasveit er 150 ára um þessar mundir, vígð sumarið 1864*). Á morgun, laugardag, messar sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir sóknarprestur í kirkjunni gömlu og fallegu og hefst athöfnin kl. 15. Undirleikari er Viðar Guðmundsson sem spilar á harmoniku og jafnframt verður almennur safnaðarsöngur. Kaffi að lokinni guðsþjónustu.
Þrátt fyrir eftirgrennslan umsjónarmanns vefjarins hefur honum ekki tekist að finna vígsludag kirkjunnar á Stað. Hins vegar er tvisvar getið um aldarafmæli hennar í Morgunblaðinu sumarið 1964 (sjá myndirnar) og hafa fyrra tilvikinu verið gerð skil hér á Reykhólavefnum (sjá tengil hér fyrir neðan).
____________________
*) Hér skal staðhæft, að óhugsandi sé annað en kirkjan hafi verið vígð að sumarlagi og þarf naumast að rökstyðja það. Auk þess má nefna, að biskup Íslands á þeim tíma, Helgi Thordersen, var þá orðinn allroskinn á þeirrar tíðar mælikvarða og naumast til mikilla ferðalaga nema við bestu aðstæður, ef hann hefur þá annast vígsluna, eins og sennilegt má telja.
Um heimsókn á Stað fyrir hálfri öld og minningarorð um hjónin á Stað:
► Aðfangadagur 2013: Fegurð við Breiðafjörð og heimsókn á Stað