Tenglar

3. maí 2019 | Sveinn Ragnarsson

Afmælistónleikar Norðurljósa 5. maí

Kórfélagar Norðurljósa á ýmsum tímum.
Kórfélagar Norðurljósa á ýmsum tímum.

Kvennakórinn Norðurljós var stofnaður haustið 1999 af Sigríði Óladóttur og systrunum Mariolu og Elzbietu Kowalczyk og á því 20 ára afmæli í haust.  Í tilefni þess, hefur kórinn æft dagskrá sem samanstendur af uppáhaldslögum undanfarinna 20 ára og lögum og textum sem hafa verið samin eða útsett fyrir kórinn.

Afmælistónleikarnir verða haldnir sunnudaginn 5. maí nk. kl. 14:00 í Hólmavíkurkirkju og eftir tónleikana verður veglegt kaffihlaðborð og afmælisveisla í félagsheimilinu á Hólmavík.  Kórkonur vonast eftir að sem flestir mæti til að fagna þessum tímamótum með þeim.

Stjórnandi kórsins hefur verið frá upphafi Sigríður Óladóttir og að þessu sinni eru meðleikarar Kjartan Valdimarsson og Gunnlaugur Bjarnason. Formaður kórsins er Aðalbjörg Óskarsdóttir.

Miðaverð er kr. 3500, og 1800 fyrir ungmenni 6 - 14 ára. Ekki er tekið við kortagreiðslum en hægt er að millifæra á reikning.

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31