Tenglar

7. október 2011 |

Afturelding: Margvíslegar íþróttaæfingar í vetur

Grettislaug og svæðið fyrir tjöld, vagna og húsbíla. Ljósm. Árni Geirsson.
Grettislaug og svæðið fyrir tjöld, vagna og húsbíla. Ljósm. Árni Geirsson.
1 af 2

Umf. Afturelding í Reykhólahreppi hvetur alla hreppsbúa til að huga að heilsunni og hreyfa sig reglulega. Í vetur stendur félagið sem fyrr að margvíslegum íþróttaæfingum sem henta fólki á öllum aldri og jafnt körlum sem konum. Hér fyrir neðan er skrá um það helsta sem er í boði í þeim efnum.

 

Sundæfingar

Andrea Björnsdóttir verður með sundæfingar í Grettislaug fyrir nemendur í 1.-10. bekk á mánudögum kl. 16. Byrjar mánudaginn 10. október.

 

Íþróttaæfingar

Guðrún Guðmundsdóttir verður með íþróttaæfingar í íþróttahúsinu fyrir nemendur í 1.-10. bekk á miðvikudögum kl. 15-16 í október og nóvember.

 

Blak

Blak fyrir konur og karla í íþróttahúsinu á miðvikudögum kl. 20.

 

Þrekæfingar

Sirrý Birgis verður með æfingar í íþróttahúsinu á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16.20. Þetta eru þolæfingar og styrktaræfingar sem henta bæði körlum og konum.

 

Þreksalur í húsi Grettislaugar

Þreksalurinn í kjallara Grettislaugar er opinn þegar laugin er opin. Aldurstakmark í þreksal er 14 ár en börn eru velkomin í fylgd fullorðinna.

 

Grettislaug á Reykhólum

Grettislaug er opin mánudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga kl. 16-20 og laugardaga kl. 13-18.

 

Fimleikar

Helgina 21.-23. október ætlar Gerða Jónsdóttir að vera með fimleika fyrir krakka á Reykhólum. Nánar auglýst síðar.

 

Sundmót

Sundmót á vegum UDN og Strandamanna verður í Grettislaug þriðjudaginn 18. október kl. 17. Allir hvattir til að mæta.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31