2. janúar 2015 |
Afturelding fékk styrk frá Orkubúi Vestfjarða
Við úthlutun samfélagsstyrkja Orkubús Vestfjarða 2014, sem tilkynnt var um núna rétt fyrir áramótin, fékk Ungmennafélagið Afturelding í Reykhólahreppi kr. 100.000 til stuðnings við barna- og unglingastarf félagsins. Alls bárust 58 umsóknir og voru veittir 19 styrkir að þessu sinni, samtals að fjárhæð 3,5 milljónir króna.
► Samfélagsstyrkir Orkubús Vestfjarða 2014