Tenglar

27. nóvember 2016 | Umsjón

Ágóðinn til björgunarsveitarinnar að þessu sinni

Brynjólfur Smárason tók við gjafabréfinu úr hendi Sveins á Svarfhóli.
Brynjólfur Smárason tók við gjafabréfinu úr hendi Sveins á Svarfhóli.

Á seinni degi jólamarkaðarins í Króksfjarðarnesi var Björgunarsveitinni Heimamönnum afhentur ágóði af nytjamarkaði Handverksfélagsins Össu sem þar er rekinn á sumrin. Að þessu sinni var um að ræða 60 þúsund krónur, sem fara upp í kaup á fjarskiptabúnaði fyrir björgunarsveitina. Brynjólfur Smárason, formaður Heimamanna, tók við gjafabréfinu úr hendi Sveins Ragnarssonar í stjórn Össu.

 

Á liðnum árum hefur ágóði af nytjamarkaði Össu runnið til ýmissa félaga og annarra samfélagsmála í héraðinu. Frá 2010 (stundum hefur úthlutun verið skipt) hafa Vinafélag Barmahlíðar, Héraðsbókasafn Reykhólahrepps, Vinafélag Grettislaugar (tvisvar), Kvenfélagið Katla, Björgunarsveitin Heimamenn (tvisvar), Lionsdeildin í Reykhólahreppi, Ungmennafélagið Afturelding og Félagsmiðstöðin Skrefið orðið ágóðans aðnjótandi.

 

Stjórn Handverksfélagsins Össu skipa Ingibjörg Kristjánsdóttir, Erla Björk Jónsdóttir og Sveinn Ragnarsson.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31