Tenglar

2. nóvember 2015 |

Áhaldahússbíllinn yngdur upp um tuttugu ár

Ingibjörg Birna sveitarstjóri afhendir Jóni lykilinn að nýja vinnubílnum.
Ingibjörg Birna sveitarstjóri afhendir Jóni lykilinn að nýja vinnubílnum.
1 af 3

Jón Þór Kjartansson á Reykhólum, sem hefur mörg undanfarin ár verið starfsmaður Áhaldahúss Reykhólahrepps, fékk nýjan vinnubíl í hendur í dag. Bíllinn er af gerðinni VW Caddy, árgerð 2011 en lítur út eins og nýr, og leysir af hólmi gamla góða Toyota Hiluxinn, sem er árgerð 1991 (mynd nr. 3). Þarna var því yngt upp um 20 ár.

 

Á síðasta fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps fyrir tæpum mánuði var sveitarstjóra og varaoddvita falið að skoða kaup á hentugum notuðum bíl fyrir Áhaldahúsið og selja Toyotuna.

 

Athugasemdir

Einar Örn Thorlacius fyrrv. sveitarstjóri Reykhólahrepps, fimmtudagur 05 nvember kl: 08:36

Til hamingju Jón Þór!

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31