Tenglar

4. júní 2011 |

Áheitasöfnun: Brellurnar hjóla Vestfjarðahring

Á morgun, sjómannadaginn, leggja „Brellurnar“ af stað til að hjóla Vestfjarðahring sem er um 640 km. Tilgangur ferðarinnar er að safna áheitum fyrir Fríðu Eyrúnu Sæmundsdóttur á Patreksfirði. Fríða er 37 ára og nýorðin lögblind. Eins og gefur að skilja hefur það ýmsar breytingar í för með sér. Aðbúnaður og breytingar sem snúa að heimilinu og kaup á tölvu sem styður forrit eins og talgervil eru meðal annars hlutir sem munu bæta lífsgæði Fríðu til muna.

 

Verndarar söfnunarinnar eru Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar og Halla Dís Hallfreðsdóttir hjúkrunarfræðingur á St. Fransciskusspítala í Stykkishólmi og einn trúnaðarmanna Blindrafélagsins. Halla Dís er lögblind með hrörnunarsjúkdóm í augnbotnum sem kallast RP (retinitis pigmentosa).

 

Heitið Brellurnar er vísun í fjallið fyrir ofan þorpið Patreksfjörð. Brellurnar skipa Björg Sæmundsdóttir, Elín Kristín Einarsdóttir, Halldóra Birna Jónsdóttir, María Ragnarsdóttir, Salóme Þorbjörg Guðmundsdóttir og Sædís Eiríksdóttir, sem mun keyra bílinn og leysa af að hjóla.

 

Áheitunum verður safnað þannig að fólk verður beðið um að heita einhverri vissri upphæð á hvern km. Ef fólk vill má það líka láta einhverja vissa upphæð ganga til þessa verðuga málefnis og leggja hana inn á söfnunarreikninginn 153-05-23, kt.100674-3199.

 

Búið er að stofna Facebooksíðu, Brellurnar, þar sem hægt er að fylgjast með.

 

Brellurnar vona að það muni ekki taka meira en eina viku að hjóla þessa leið. Það getur þó tekið lengri tíma ef veður verður ekki gott eða ef eitthvað annað kemur upp á. Skipulag ferðarinnar er eftirfarandi:

  • Dagur 1: Lagt af stað frá Patreksfirði kl. 14.15 á sjómannadag og hjólað í Flókalund, 61 km.
  • Dagur 2: Hjólað í Fjarðarhorn, 63,7 km.
  • Dagur 3: Hjólað til Hólmavíkur, 108 km.
  • Dagur 4: Hjólað í Heydal, 108 km.
  • Dagur 5: Hjólað til Súðavíkur, 115 km.
  • Dagur 6: Hjólað í Mjólká, 93,4 km.
  • Dagur 7: Hjólað á Patreksfjörð, 98,3 km.

Ef allar komast alla leið eru þetta um 3.240 km hjá þeim samanlagt.

 

Heildarupphæðir miðað við áheit á hvern kílómetra:

  •   0,5 kr. á km = 1.620
  •   1 kr. á km = 3.240
  •   1,5 kr. á km = 4.860
  •   2 kr. á km = 6.480
  •   2,5 kr. á km = 8.100
  •   3 kr. á km = 9.720
  •   3,5 kr. á km = 11.340
  •   4 kr. á km = 12.960
  •   5 kr. á km = 16.200
  •   6 kr. á km = 19.440
  •   7 kr. á km = 22.680
  •   8 kr. á km = 25.920
  •   9 kr. á km = 29.160
  • 10 kr. á km = 32.400

 

Við treystum á ykkar stuðning!

- Brellurnar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31