Tenglar

1. ágúst 2017 | Sveinn Ragnarsson

Aksjónin á Seljanesi

Uppboðið á Seljanesi var vel sótt, og margt góðra gripa var þar í boði. Allur ágóði rennur til góðgerðarmála. Upphæð söfnunarfjár var 540 þúsund, og verður því skipt í tvo staði. Það verður nánar sagt frá síðar hverjir fá að njóta, en gefið hefur verið upp að það tengist börnum.

Listar yfir þá sem sem gáfu hluti á uppboðið og styrktu þetta framtak eru hér á myndum.  

Einnig var happdrætti til stuðnings safnastarfinu á Seljanesi, þar voru veglegir vinningar.

 

Gestum var boðið upp á veitingar, heita súpu og grasamjólk, eitthvað sem færði yl í kroppinn og jafnvel sálina, sem var kærkomið því Kári blés nokkuð hressilega út Berufjörðinn.

Athugasemdir

Maria Maack, mivikudagur 02 gst kl: 12:38

Um að gera að setja fram einhver konar aðgerðaráætlun og framkvæma það sem er jákvætt. Halda áfram a ræða möguleika á samvinnu og samstöðu. Til dæmis í ferðaþjónustu.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31