16. nóvember 2009 |
Ákvörðun varðandi refaveiðar mótmælt
„Sveitarstjórn Reykhólahrepps mótmælir harðlega þeirri ákvörðun sem kemur fram í fjárlagafumvarpi 2010 að skera alfarið niður endurgreiðslur til sveitarfélaga vegna refaveiða fyrir tímabilið 1. september 2009 til 31. ágúst 2010.“ Þannig segir í bókun sem gerð var á síðasta fundi hreppsnefndar vegna bréfs frá Umhverfisstofnun þessa efnis, sem þar var lagt fram. Engar endurgreiðslur verða af hálfu ríkisins ef fer sem horfir.
Sjá einnig:
Minkaveiðar styrktar áfram en refaveiðar ekki
Minnt skal á, að fundargerðir nefnda Reykhólahrepps er að finna á pdf-formi neðst til vinstri hér á vefnum.