Álagning gjalda í Reykhólahreppi 2021
Álagningarákvæði fara eftir lögum nr. 4/1995 með síðari breytingum
og samþykkt sveitarstjórnar 19. nóvember 2020.
Útsvar:
Álagningargjaldstig útsvars á tekjur ársins 2020 er 14,52%.
Fasteignaskattur:
Fasteignaskattur A 0,50%
Fasteignaskattur B 1,32%
Fasteignaskattur C 1,65%
Fráveitugjald 0,20%
Vatnsgjald 0,50%
Lóðarleiga 4% (af nýjum lóðum)
Sorpeyðingargjald skv. gjaldskrá er innheimt jafnframt fasteignagjöldum og lóðarleigu.
Gjalddagar fasteignagjalda eru fimm:
10. febrúar 2021
10. apríl 2021
10. júní 2021
10. ágúst 2021
10. október 2021
Eindagi er 30 dögum eftir gjalddaga.
Sé álagningin 15.000 kr. eða minni er einn gjalddagi, 10. apríl 2021.
Sé álagningin 15.001 til 25.000 kr. eru tveir gjalddagar, 10. febrúar og 10. apríl 2021.
Annars eru gjalddagarnir fimm.
Afsláttur til elli- og örorkulífeyrisþega:
Elli- og örorkulífeyrisþegar með lögheimili og búsetu í Reykhólahreppi njóta 100% afsláttar
af fasteignaskatti ef árstekjur fara ekki yfir kr. 4.258.000 hjá einstaklingi og kr. 6.150.000 hjá hjónum. Afsláttur er aðeins veittur af einni íbúð hvers gjaldanda og þarf hann að hafa lögheimili í íbúðinni. Ekki þarf að sækja sérstaklega um afsláttinn.