16. mars 2015 |
Álagning gjalda í Reykhólahreppi fyrir árið 2015
Skrifstofa Reykhólahrepps hefur sett álagningarseðla fyrir árið 2015 á vefinn island.is. Greiðsluseðill birtist í heimabanka greiðanda. Áfram eru þó greiðsluseðlar sendir út í hefðbundnum pósti til þeirra sem eru 67 ára og eldri.
Á álagningarseðlum Reykhólahrepps sem birtast í heimabönkum segir, að álagningarákvæðin sé að finna hér á heimasíðu Reykhólahrepps. Þau eru í reitnum Gjaldskrár neðst á síðunni og undir Stjórnsýsla - Gjaldskrár í valmyndinni vinstra megin. Jafnframt hefur verið komið fyrir kassa til að smella á hér hægra megin, fyrir ofan tengilinn Vindar í beinni (Álagning 2015).
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Reykhólahrepps í síma 430 3200 og netfanginu skrifstofa@reykholar.is.