18. desember 2014 |
Álagningarprósentur óbreyttar, þjónustugjöld hækka
Gengið hefur verið frá álagningarákvæðum varðandi útsvar og fasteignagjöld hjá Reykhólahreppi árið 2015 ásamt gjaldskrám fyrir ýmsa þjónustu. Útsvarsprósenta og álagning fasteignaskatts breytast ekki milli ára. Í flestum tilvikum hækka gjöld fyrir þjónustu á vegum sveitarfélagsins í samræmi við verðlagsbreytingar milli ára.
Þetta má allt sjá nánar í fundargerð sveitarstjórnar.