16. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is
Álagningarseðlarnir og álagningarákvæðin
Á álagningarseðlum Reykhólahrepps, sem eiga að birtast í heimabönkum fólks núna eftir helgina segir, að álagningarákvæðin sé að finna hér á heimasíðu Reykhólahrepps. Þau eru í dálkinum Gjaldskrár allra neðst á síðunni og undir Stjórnsýsla - Gjaldskrár í valmyndinni vinstra megin. Jafnframt hefur verið komið fyrir kassa til að smella á hér hægra megin, fyrir neðan tengilinn inn á heimasíðu Björgunarsveitarinnar Heimamanna (Álagning 2014).
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Reykhólahrepps í síma 434 7880 og netfanginu reykholar@reykholar.is.
► 14.03.2014 Álagningarseðlar sendir út