Tenglar

13. maí 2016 |

Álftaland – Reykholar hostel: Opið hús

Sveinn Borgar og Guðbjörg á Reykhóladögum fyrir fáeinum árum.
Sveinn Borgar og Guðbjörg á Reykhóladögum fyrir fáeinum árum.

Sveinn Borgar Jóhannesson og Guðbjörg Tómasdóttir verða með opið hús núna á sunnudag milli kl. 16 og 18 á gistiheimilinu á Reykhólum, sem um langt árabil bar heitið Álftaland og mun gera það áfram. „Vonumst til að sjá sem flesta,“ segja þau. Léttar veitingar verða í boði, auk þess sem hægt verður að sjá það sem þarna er búið að framkvæma á undanförnum mánuðum.

 

Eins og hér kom fram festu Sveinn og Guðbjörg kaup á gistiheimilinu í byrjun þessa árs. Það hafði þá ekki verið í rekstri frá því haustið 2014.

 

Þó að húsið og gistiheimilið muni heita Álftaland hér eftir sem hingað til mun það á bókunarvefjum bera heitið Reykholar hostel.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31