Tenglar

22. janúar 2020 | Sveinn Ragnarsson

Allir íbúar fá árskort í sund endurgreidd

Þegar Landinn heimsótti Reykhóla var frítt fyrir alla í sund
Þegar Landinn heimsótti Reykhóla var frítt fyrir alla í sund

Á áðurnefndum sveitarstjórnarfundi var samþykkt að endurgreiða árskort í sund fyrir ALLA íbúa með lögheimili í Reykhólahreppi. Það er liður í heilsueflingu og tekur gildi strax.

 

Um nokkurra ára skeið hefur verið í boði íþrótta- og tómstundakort sem veitir börnum og unglingum rétt á ákveðnum fjárstyrk til margvíslegra tómstundaiðkana, íþrótta og tónlistar o.fl. Nú hefur sundkortunum verið bætt við og heita þau núna íþrótta-, tómstunda- og sundkort Reykhólahrepps.

 

Andvirði sundkortanna er viðbót við tómstundastyrkinn sem börn og unglingar hafa fengið, og eins og áður segir, fá allir aðrir sem lögheimili eiga í hreppnum endurgreidd árskort.

  

Athugasemdir

Maria Maack, fimmtudagur 23 janar kl: 10:41

Við höfum keypt 10-20 skipta kort, - Ef við eigum ekki árskort þurfum við samt fyrst að kaupa það og fá síðan endurgreitt eða er bara frítt í sund fyrir íbúa Reykhólhrepps?

Jóhanna, fimmtudagur 23 janar kl: 12:10

Ef þú opnar reglurnar þá stendur þetta allt þar. En það þarf að kaupa árskortið og fá það síðan endurgreitt :)

Málfríður Vilbergsdóttir, fimmtudagur 23 janar kl: 14:35

Frábært framtak ég stefni á að notfæra mér það. Takk fyrir. P.s. Svo þegar sírensli verður komið á kaldapottinn verður sundlaugin fullkomin í mínum augum.
Bestu kveðjur Málfríður ;)

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31