Tenglar

28. janúar 2017 | Umsjón

Allir lesa: Landsleikurinn byrjaður

1 af 2

Í gær var blásið til leiks í landsleiknum Allir lesa. Mörg sveitarfélög hvetja íbúa sína til að mynda lið og skrá lestur í von um að í bænum leynist sigurliðið, og þar með öflugustu lestrarhestar landsins, segir í tilkynningu. Í ár er einnig er hægt að keppa sem einstaklingur og verður fróðlegt að sjá hver les mest allra Íslendinga. Vinningshafar fá gjafakort á bókamarkað Félags íslenskra bókaútgefenda og stærstu liðin fá girnilegar kræsingar með lestrinum.

 

Landsleikurinn er frábært tækifæri til að minnka skjátíma og lesa eitthvað af þeim fjölmörgu frábæru bókum sem fylla hillur landsmanna og bókasafna landsins. Hægt er að hefja keppni hvenær sem er á tímabilinu 27. janúar til 19. febrúar og hefur fjöldi fólks þegar skráð sig til leiks á allirlesa.is, segir í tilkynningunni.

 

Aðstandendur Allir lesa eru Miðstöð íslenskra bókmennta og Reykjavík, Bókmenntaborg UNESCO, í samstarfi við Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Heimili og skóla.

 

Lestrarhestar: Mæðgur þrjár frá Mýrartungu (26. nóvember 2014)

 

Mikið lesið í Reykhólahreppi eins og áður (25. febrúar 2016)

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31