Tenglar

22. júní 2012 |

Alls konar ást á Hólmavík

Hamingjudagar 2010 / Jón Halldórsson.
Hamingjudagar 2010 / Jón Halldórsson.

Tónleikar sem bera hið ljúfa heiti Alls konar ást eru fyrsti viðburður Hamingjudaga á Hólmavík þetta árið. Þeir verða í Hólmavíkurkirkju og hefjast kl. 20 á mánudagskvöld, 25. júní. Að tónleikunum stendur kór kirkjunnar ásamt góðu samstarfsfólki og gestum. Efnisskráin er fjölbreytt en eitt er þar þó sammerkt: Fjallað er um ást frá ýmsum hliðum. Þjóðfræðistofa á Ströndum verður með skemmtileg innlegg milli laga og sérstakir gestir eru Gógó-píurnar sem gert hafa garðinn frægan, m.a. á tónlistarhátíðinni Aldrei fór ég suður.

 

Undirleikari er Stefán Steinar Jónsson og stjórnandi Viðar Guðmundsson. Aðgangseyrir er kr. 2.000 fyrir 13 ára og eldri.

 

Segja má að Hamingjudögum á Hólmavík sé þjófstartað með þessum upphafstónleikum. Dagskrá þeirra verður að öðru leyti frá 28. júní til 1. júlí eða frá fimmtudegi og fram á sunnudag.

 

Myndin sem hér fylgir er frá Hamingjudögum 2010. Hún er fengin af hinu ágæta og fjölbreytta myndabloggi Jóns Halldórssonar á Hólmavík.

 

Hamingjan í hávegum höfð

Dagskrá Hamingjudaga 2012

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31