Allt fullt af sveppum - uppskrift til reiðu
Villisveppirnir í súpuna á Reykhólum í kvöld voru tíndir í dag í landi Hyrningsstaða við Berufjörð í Reykhólasveit, rétt innan við Barmahlíðina fríðu. Að því verki stóðu Árni Baldvinsson á Hyrningsstöðum (þar er nú einungis sumardvöl á síðari árum) og Steinar Pálmason í Álftalandi á Reykhólum, sem eldar súpufundarsúpuna eins og svo oft áður. Að sögn Steinars verða í súpunni einar sex tegundir af sveppum úr Reykhólasveit. „Núna er ég búinn að skræla sveppina og fer svo að þvo þá og sjóða,“ sagði hann á fimmta tímanum í dag.
Svar þeirra félaga við spurningunni hvernig sveppaárið sé að þessu sinni er afdráttarlaust: Það er allt fullt af sveppum.
Þegar Steinar Pálmason er spurður hvar og hvenær kunnáttu hans í villisveppasúpugerð verði notið annars staðar en á Reykhólum í kvöld segir hann: Ef fólkinu á fundinum þykir súpan góð, þá er velkomið að fá hjá mér uppskriftina.
Kannski má líka vænta þess, að nemendur og kennarar Reykhólaskóla, sem og heimilisfólk í Barmahlíð á Reykhólum, fái núna með haustinu að njóta þessarar heimahéraðsvillisveppasúpu, því að meistari Steinar Pálmason er matráður hinna sameinuðu mötuneyta Reykhólahrepps.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag í Veitunni á Hyrningsstöðum.