16. júní 2010 |
Allt mögulegt og ómögulegt í Kaupfélaginu í Nesi
Opnaður verður fjölbreyttur markaður í Króksfjarðarnesi kl. 16 á morgun, þjóðhátíðardaginn 17. júní. Á boðstólum verður handverk, nytjahlutir á borð við búsáhöld, fatnaður, skór og gamlar bækur. Þarna verður einnig vinnustofa handverksfólks og myndasýningar, kaffi á könnunni og leikjahorn fyrir börnin. Að þessu framtaki stendur Handverksfélagið ASSA í Reykhólahreppi ásamt fleirum. Félagið mun ekki aðeins selja vörur fyrir sitt félagsfólk heldur einnig aðra sem vilja. „Það verður allt mögulegt og ómögulegt á boðstólum í KK í Nesi“, segir í tilkynningu. „Ef þið viljið losna við eitthvað úr geymslunni eða föt og skó sem nýtilegt er, þá munum við selja það og gefa ágóðann til góðra málefna hér í sveitinni í lok sumars.“
Í sumar verður opið allar helgar frá 17. júní og út ágúst sem hér segir: Föstudaga kl. 16-19, laugardaga og sunnudaga kl. 14-18. Auk þess verður opið virka daga þegar fólk er við handverk í vinnustofu og verður það nánar auglýst síðar.
Undir tilkynninguna rita:
Jóna Valgerður, símar 893-6396 / 434-7754
Erla Björk, sími 892-7897