Tenglar

18. nóvember 2011 |

Alltaf rok á Reykhólum? Algjör vitleysa!

Yngstu nemendurnir í Reykhólaskóla (1.-3. bekkur) gerðu síðustu tvo mánuði eða frá miðjum september og núna fram í miðjan nóvember skipulegar veðurathuganir þrisvar í viku í samfélagsfræðitímum hjá Ástu Sjöfn. Byggt var á upplýsingum frá sjálfvirku veðurstöðinni rétt neðan við Reykhólaþorp sem birtast á vef Veðurstofu Íslands. Athugað var hitastigið, vindhraðinn, vindáttin og skýjafarið svo og úrkoma. Niðurstaðan er þessi: Það er að okkar mati algjör vitleysa að það sé alltaf rok á Reykhólum heldur er eiginlega alltaf gott veður. Reyndar var ekki glaðasólskin nema einu sinni á þessum tíma en oftast hálfskýjað. Fjórum sinnum rigndi og tvisvar snjóaði.

 

Á fyrstu myndinni er skráningartafla fyrir tímabilið en á hinum eru klippimyndir sem krakkarnir gerðu. Smellið á til að stækka.

 

Nemendurnir sem unnu þetta verkefni eru:
     1. bekkur: Aníta, Margrét, Ketill
     2. bekkur: Adrían, Hlynur, Samúel, Sara, Sigurjón
     3. bekkur: Solveig, Tindur, Valdimar

 

Athugasemdir

Guðjón Sigurðsson, laugardagur 19 nvember kl: 23:03

Þetta hef ég alltaf sagt.Ég hef yfirleitt komið að Reykhólum í yndislegu veðri.
Dásamlegur staður.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31