27. nóvember 2009 |
Almenn raunlækkun á útsvarstekjum sveitarfélaga
Heildarútsvarstekjur sveitarfélaga eru nærri átta milljörðum króna lægri að raunvirði í ár en í fyrra. Formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að færa verði þjónustuna í það horf sem var fyrir nokkrum árum. Mest er höggið á höfuðborgarsvæðinu en næstverst er ástandið á Austurlandi. Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, segir sveitarfélögin reyna um þessar mundir að bregðast við þessu.
Hann vonar að í fyrra hafi nægjanlega verið undið ofan af þenslu sem orðið hafi í opinberri þjónustu undanfarin ár til þess að búið sé að ná þeim grunni sem standa eigi á þegar réttir úr kútnum.