6. febrúar 2012 |
Almennur umræðufundur hjá Skruggu
Stjórn Leikfélagsins Skruggu í Reykhólahreppi auglýsir almennan félagsfund sem haldinn verður mánudag 13. febrúar kl. 20 í anddyri íþróttahússins á Reykhólum. Fundarefni er vorstarfið. Kaffi á könnunni. Allir velkomnir, bæði félagsfólk og aðrir sem hafa áhuga.