27. júní 2022 | Sveinn Ragnarsson
Ályktun sveitarstjórnar um Baldur
Á fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps þann 23. júní sl. var lögð fram ályktun um ferjusiglingar á Breiðafirði.
Flatey eins og stór hluti Breiðafjarðareyja er í Reykhólahreppi og því lætur sveitarstjórn sig varða samgöngur þar, eins og í öðrum hlutum sveitarfélagsins.
Ályktunin hljóðar svo:
„Reykhólahreppur lýsir yfir þungum áhyggjum varðandi ferjusiglingar Baldurs á Breiðafirði. Baldur er eina tenging íbúa Flateyjar við meginlandið og mjög mikilvægur hvað varðar margvíslega þjónustu við Flatey. Tryggja þarf öryggi farþega með nýrri ferju, án þess að það komi niður á þjónustu við íbúa í Flatey.“