24. september 2011 |
Ánægð með viðtökurnar á fatamarkaðinum
„Ég er óskaplega ánægð með viðtökurnar, þær hafa verið frábærar“, segir Nanna Sif Gísladóttir, sem er með þriggja daga fatamarkað í Tjarnarlundi í Saurbæ. Hún og Böðvar Guðmundsson maður hennar eru frístundabændur og hestafólk á Stóra-Múla í Saurbæ og hafa verið það nokkur undanfarin ár. Markaðurinn byrjaði í gær og síðasti dagurinn er á morgun, sunnudag. Hann er opinn kl. 12-18.
Með fylgja myndir sem teknar voru á markaðinum í Tjarnarlundi í gær. Á síðustu myndinni er Nanna Sif ásamt vinkonu dóttur sinnar.
Þriggja daga fatamarkaður í Tjarnarlundi