29. desember 2017 | Sveinn Ragnarsson
Áramótabrenna á Reykhólum
Áramótabrennan á Reykhólum,verður eins og undanfarin gamlárskvöld á endurvinnslusvæðinu og kveikt verður upp kl 20:30.
Það er auðvitað með fyrirvara um veður, en spáin er góð eins og alltaf hér á Reykhólum.
Fólk beðið að búa sig vel fyrir kulda og ekki gleyma góða skapinu.