6. ágúst 2010 |
Árleg messa í Flatey á Breiðafirði
Hin árlega messa í Flateyjarkirkju á Breiðafirði verður haldin á morgun, laugardaginn 7. ágúst kl. 14. Undirleikari í ár er Viðar Guðmundsson og kór Reykhólaprestakalls mun leiða sönginn. Prestur er sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir.